Hræðileg helgi í Hólminum og Náladofi á Narfeyrarstofu
February 24, 2023 - February 26, 2023
Göróttur Glæsir
„Ég er kominn hingað til að drepa. Það kann ég.“ sagði nautið Glæsir í samnefndri skáldsögu eftir Ármann Jakobsson sem byggir á atburðum og persónum Eyrbyggja sögu. Glæsir var nefndur til sögunnar sem afturganga hins litskrúðuga Þórólfs Bægifótar sem hlaut skaða á fæti, gott ef ekki við hólmgöngu vegna jarðaeigna í Álftarfirði. Kokkteillinn sem við Glæsi er kenndur er útataður blóði og blandast inn í hann áhrif bola, manns og draugs!
Opið 24. – 26. febrúar 2023
Föstudagur: Opið í hádeginu 12-14 og frá kl. 18
Vínstúkan opnar kl. 18
22:00 Hlaðvarpið Myrkur „í beinni“ fjallar um hina ýmsu glæpi. Kokkteillinn Göróttur Glæsir kynntur til sögunnar!
Laugardagur: Opið 12-14 og frá kl. 18
Vínstúkan opnar kl. 16
17:00 Hlaðvarpið Myrka Ísland „í beinni“ fjallar um íslensk fjöldmorð. Göróttur Glæsir á boðstólum.
Sunnudagur:
Opið 12-14 og frá kl. 18