Göróttur Glæsir

„Ég er kominn hingað til að drepa. Það kann ég.“ sagði nautið Glæsir í samnefndri skáldsögu eftir Ármann Jakobsson sem byggir á atburðum og persónum Eyrbyggja sögu. Glæsir var nefndur til sögunnar sem afturganga hins litskrúðuga Þórólfs Bægifótar sem hlaut skaða á fæti, gott ef ekki við hólmgöngu vegna jarðaeigna í Álftarfirði.
Kokkteillinn sem við Glæsi er kenndur er útataður blóði og blandast inn í hann áhrif bola, manns og draugs!

Hlökkum hræðilega mikið til að sjá ykkur!!

Opið

Föstudagur:

Opið í hádeginu 12-14 og frá kl. 18 Vínstúkan opnar kl. 18

22:00 Hlaðvarpið Myrkur „í beinni“ fjallar um hina ýmsu glæpi.  Kokkteillinn Göróttur Glæsir kynntur til sögunnar!

Laugardagur:

Opið 12-14 og frá kl. 18 Vínstúkan opnar kl. 16

17:00 Hlaðvarpið Myrka Ísland „í beinni“ fjallar um íslensk fjöldmorð. Göróttur Glæsir á boðstólum.

Sunnudagur:

Opið 12-14 og frá kl. 18

Borðapantanir á Dineout.